|
|
27.03.2007 11:56:47 / Áslaug
Hef ákveðið að hætta með
blog.central....
Færði mig yfir í
bloggar.is
->
http://aslaugthorgeirs.bloggar.is/
Vonandi takiði bara vel í
þetta og breytið vinsamlegast tenglinum mínum, það er að segja ef
þið eruð með mig í tenglum... 
»
26.03.2007 13:20:58 / Áslaug
Við tókum nokkrar
gott stuð á laugardaginn...Byrjuðum hjá Helgu, þar var mikið
fjör, mikið gaman...Einhvað af myndunum eru komnar, fleiri bætast
við í kvöld
Myndir 8
*NÝTT*
http://barnaland.is/barn/55654/album/478633/img/20070325234003_0.jpg

Man nú reyndar
ekkert eftir þessu atviki en jæja...
»
19.03.2007 11:02:58 / Áslaug
mæðu? Já svo sannarlega, mikið rosalega
hata ég mánudaga, kannski því ég þoli ekki vinnuna
mína...
Jæja hætta að væla...Helgin var fínt,
roooosalega róleg!
Á föstudagskvöldinu kíkti ég til
Gretu og við horfðum á X-factor og átum nammi,
hélt síðan heim og horfði á Just my luck....Vaknaði fersk síðan á
laugardeginum, fór á æfingu, spilaði og skoraði meirarsegja, en ég
hefði þó aldrei getað það ef ég ætti hana Ernu
mína ekki til að styðja mig hehe Jæja síðan kíktum við Erna á
Aroma í smá síðdegis hádegismat! Fín súpa, jájá....Ooooggg svo
fórum við nokkrar úr handbó á Thorvaldsen um
kveldið...Viti menn ég fékk mér fisk Hann var góður samt, ánægð
með hann...Jæja félagi, svo vorum við spjallandi einhvað fram á
kvöld en héldum þó heim á skikkanlegum tíma, enda
Druslur að keppa daginn eftir!
Oki það sem komið er af þessu bloggi er
alveg hriiiikalega leiðinlegt...jæja ég ætla að reyna að halda
áfram...
Það er allt að ske í
Miami málunum mínum! Ég er sem sagt komin inn í
skólann, jahh eða allavega komin með Student ID number, svo já það
hlýtur að vera Svo er ég komin í samband við einhvern kall útaf
íbúð...Stefni sem sagt á að fá 2 svefnherbergja
íbúð, ekkert minna sko...Enda er ég að búast við að vinir mínir
komi í heimsókn!!
Ég mun þá fara út í miðjum september, og
já vera í að minnsta kosti 3 ár heh Þetta verður
stuð...Ég sé fram á að ég eigi eftir að safna
brúnku til lífstíðar...Ekki er það nú
amalegt!
En já þetta er allt saman rosalega
spennandi en samt auðvitað soldið stressandi, enda er maður að fara
út í heiminn að búa ein...
Ætla að láta eina góða fylgja...Ég hvet
ykkur síðan að skunda útí næsta banka og stofna sparnaðarbók til
þess að koma í heimsókn til mín

»
15.03.2007 11:18:54 / Áslaug

Eigum við einhvað að ræða
þetta stelpur??? Nú eða kannski strákar!
Ég náttúrulega VARÐ að
setja hann inn sem vin á MySpace!!
Annað væri
skandall...
Talandi um MySpace, þá gaf
ég eftir og fékk mér svoleiðis, reyndar 2, þar sem fyrsta virkaði
ekki...
-> http://www.myspace.com/aslaugth
Allavega þá var ég einhvað
að vafra um og fann síðuna hjá kallinum, eitt sem böggaði mig smá
sko, hann segist ekki vilja börn, en þegar hann kynnist mér þá veit
ég að maðurinn vill fjölga mannkyninu með smá blöndu af mér og
sér...
Vá hvað við verðum byrjuð
að senda hvor öðru komment innan tíðar, svona er nú MySpace
skemmtilegt....Hvað í fjandanum var ég að hafa á móti þessu!!
Gooooosh....
Kv. Áslaug
Ronaldo
»
13.03.2007 09:46:17 / Áslaug
Myndirnar hennar Ernu komnar inn, mínar
bætast við í kvöld!!
http://barnaland.is/barn/55654/album/473522/img/20070312224405_0.jpg
Eða Myndir 7
*NÝTT*

Veihh veihh við
erum meistarar, við erum meistarar, við erum
BIKARMEISTARAAAAAR!!
Já helgin var svo
sannarlega góð, eða laugardagurinn allavega
Ég nenni ekki að blogga um
þetta en einsog margir vita urðum við Druslós Bikarmeistarar, það
náttúrulega klikkar ekki...
Fórum í fyrirpartý til Helgu,
svo í afmæli til Nonna liðstjóra, sýndum mergjað myndband tileinkað
kallinum! Haaappyyy birthdayyyy mister Nonniii, haaappyyy
birthdayyy to youuu, já krakkar mínir hún Erna mín klikkaði ekki í
hlutverki Marilyn Monroe hahahah
Jæja það var fínt í afmælinu,
en við ákváðum þó aðeins að kíkja líka á Aroma, ekki frásögufærandi
nema að Pólverjar eru gjéééðveikir í hausnum!!! Ég get svo svarið
það vesenið á þessu liði, ég hélt á tímapunkti að einn maður hefði
verið stunginn, enda lá hann kyrr í stiganum og einhver smá
blóðpollur og læti, og aðrir öskrandi "Polizia, Polizia"...Já þá
fór ég bara heim að knúsa kæró
Svaf á sunnudeginum! Gerði
síðan fátt annað en að horfa á íþróttir, Haukur að keppa sinn
fyrsta leik með Þrótti, og svo var 2.fl. Hauka að keppa í Bikarnum,
en töpuðu því miður fyrir góðu liði Vals
En jæja nóg um
íþróttir!!!
Ég og Erna tókum fullt af
myndum sem koma vonandi inn í kvöld, þar á meðal
myndir af mér og Ernu Hall í afar sexý myndatöku in the
wind, og svo ég, Erna Monroe og Erna Hair Model að
drukkna í súkkulaðigosbrunninum...Jááá stelpur
góðir tímar
-Áslaug
»
06.03.2007 12:01:20 / Áslaug
Það er rosalega margt í
gangi þessa dagana!!
- BIKARLEIKUR á laugardaginn
við Gróttu kl. 13:30, allir að mæta í
Höllina

- Er að koma mér í gang
handboltalega séð, ætli maður nái einhverjum
leikjum??
- Bíð og bíð eftir svari frá
skólanum á Miami, þetta fer allt að koma!
- Leitandi af íbúð á Miami, gengur
bara þónokkuð vel

- Er að reyna að gera heimasíðuna
fyrir Bonitu reddí...
Æj, allavega finnst mér
margt í gangi
Annars var helgin alveg
svakalega róleg, vægt til orða sagt...
Á föstudeginum gerði ég ekki
blautann, hékk heima og kúrði undir teppi með fjölskyldunni og
horfði á imbann...
Á laugardeginum skelltum við
skötuhjúin okkur á Incubus tónleikana...Þeir voru góðir, en maður
sat bara þarna í rólegheitunum! Svo fór maður bara heim að
sofa...

Hef svosum ekkert mikið um að
blogga, en mér finnst þessi síða alveg að syngja sitt
síðasta...Hrikalega fáir sem skoða þetta helvíti!!
En allavega, þá verður næsta
helgi fjörug...Bikarleikur á laugardeginum og þá mjög líklega
sigurgleði um kvöldið Og þannig er það nú að Nonni liðstjóri
verður 50 ára og heldur heljarinnar partý á Ásvöllum!! Og síðast en
ekki síst, þá skilst mér að Helga muni halda eftirpartý, þannig að
við munum vera að alveg fram á næsta dag...
-Slauga
»
28.02.2007 22:24:17 / Áslaug
Myndirnar úr afmælinu hans Hauks komnar
inn...
http://barnaland.is/barn/55654/album/467825/img/20070228211842_0.jpg
Eða Myndir 6 *NÝTT*
Veihh veihh, það var mikið fjör, mikið
gaman!

»
28.02.2007 10:44:35 / Áslaug
Ég vil biðja mína helstu aðdáendur um að
afsaka mig, myndirnar komu ekki inn á réttum tíma! Hræðilegt
alveg hreint...
En málið var það að ég gleymdi myndavélinni heima hjá
Hauki og komst því ekki í þetta mál, en ég LOFA ég set þær inn í
kvöld, enda mjög skemmtilegar myndir
Smá svona úr Hollywood, en einsog flestir
vita þá var Óskarinn núna á sunnudaginnn...
Hérna eru nokkrar úr
eftirpartýi...

Hún er nú hálf ósmekkleg hún Oprah með
brjóstin sín hmm?!?

Þetta er hann James Blunt ásamt kærustu
sinni, en hún er víst einhver súpermodel! Persónulega verð ég
að segja að mér þykir ekki mikið varið í
Bluntarann...

"Jæja Penélope, drekktu!!"

Og klikkuðu hjónin mætt á svæðið!

Þessi kann sko að syngja!
"One night only"

Einhvernvegin finnst mér tískuvit þeirra ekki
alveg fitta saman?
Jæja ekki meir í bili!!
MYNDIR Í KVÖLD!!!! 
»
26.02.2007 12:26:51 / Áslaug
Þessi
helgi var bara hin besta!!
Föstudagurinn var jú minn 21. afmælisdagur! Erna, Greta
og Inga mættu til mín um kvöldið og við horfðum á X-factor og átum
óhollt
Á
laugardeginum vaknaði ég galvösk, tilbúin í þennan góða dag, ég,
Erna og Greta skelltum okkur í Smáralind og versluðum örlítið, mér
tókst nú að kaupa mér 2 kjóla, gaman gaman! Jæja svo var
skellt sér á leik (-Greta), jæja svo var kl. orðin margt og
við gerðum okkur fínar hjá Gretu, hún greiddi okkur líka að
sjálfsögðu
Jæja þá
mættum við 3 í tvítugsafmælið hjá Hauki...Þar var bara rosa gaman,
enda gott pylsupartý, heheh djók! Haukur var alveg að standa sig
sem gestgjafi, hann er með þetta í sér kallinn Jæja svo skutlaði
Solla Tengdó okkur í bæinn um hálf 2 leitið...
Bærinn
var ekki uppá sitt besta, 15 ára krakkar á Hverfis, og algjörlega
ofmannað á Vegamótum...En það sem stóð uppúr í bænum voru
slagsmálin mín...Jájá það er alltaf svo mikið fjör í kringum
mig...En þannig var það að ég + co. vorum að koma útaf Vegamótum,
og þeir sem hafa farið þangað ættu að þekkja það að fólk hrúgast
allstaðar fyrir framan og maður þarf að troðast til að komast út,
mjööög fáránlegt en jæja, er ekki einhver gaur (c.a. 25-27) sem
svoleiðis bombar á bakið á mér, ég var greinilega einhvað fyrir
honum þegar ÉG var að fara ÚT!!!! Vá það fauk svo ógeðslega í mig
að ég snéri mér við og tók bara Rocky á þetta og kýldi hann eins
fast og ég gat í bakið...Því miður snéri hann baki í mig svo að ég
gat ekki dúndrað í ógeðis ljóta andlitið hans!!! Svo öskraði ég
eitt og annað á hann heheheh...
Jæja
næst var haldið á kebab-staðinn, mér fannst það afar gott en ekkert
allir á sama máli! Svo var það taxi heim, sofa, vaknað síðan kl.
9:30! Þjálfað, farið í bakaríið, og svo sofið aftur...
Ég tók
helling af myndum, eða 66 talsins...Þær koma að sjálfsögðu hérna
inn eftir vinnu svo að ef ég væri þú, þá myndi ég kíkja aftur í
dag! 
-Áslaug
Balboa
»
23.02.2007 09:43:06 / Áslaug
...þá kom ÉG í heiminn, foreldrum mínum til
mikillar gleði!! 

Já maður er að verða helvíti gamall
einhvað!!

»
21.02.2007 23:12:25 / Áslaug
Vá hversu
ánægð er ég núna...Hmm...Bara afar mikið takk fyrir!!
Elsku
Druslurnar mínar voru að tryggja sér sigur á móti Val og eru því á
leið í HÖLLINA
Hreint út
sagt hálf ótrúlegur leikur, Druslurnar ótrúlega góðar og
Valsstelpurnar ótrúlega lélegar!
Ég get svo
svarið það ég gæfi ALLT fyrir að vera memm en jááá
neiii...

Haukar
eru BESTIR, jahh eða allavega kellingarnar...
Einsog BO
syngur - HAMINGJAN!!!
P.S. Ég
afsaka þessa færslu fyrir þeim sem eru svona anti-íþróttafólk...Þið
eruð samt ágæt grey
»
20.02.2007 17:40:31 / Áslaug
Já hann
pabbi minn hefur eignast nýjann besta vin....
*Trommusláttur*
Það er
enginn annar en folinn Jude Law!!
Það vildi
svo skemmtilega til að pabbi flaug með folann aftur heim til
Englands á laugardagsmorguninn...! Svo var Jude einhvað úti að aka
með krakkana sína 3 og gleymdi töskunni sinni í Leifstöð og
flugvélin tilbúin til að fara...Þá fór flugstjórinn
(pabbi) bara og náði í töskuna fyrir kallin...Jude var víst
afar ánægður með þetta og hversu indælt fólkið væri nú hérna á
Íslandi!! Það er óhætt að segja að ég myndi liggja kylliflöt þarna
á staðnum heh...

En yfir í
annað, þá er ég hérna heima ennþá, svaka stuð á mér...
Annars fínn
dagur þrátt fyrir veikindi...Var að fá nýjann síma! Nokia
6131...

Það er
þriðjudagur í dag, og ég er búin að plana helgina,
víjjj...
Þar sem að
ég á afmæli á föstudaginn, 21. árs kvikindi takk fyrir Þá fæ ég
sérvalda gesti í heimsókn í kósý heit...Svo á laugardaginn verður
tekið örlítið meira á því en þá heldur Gauksi uppá afmælið sitt, en
hann varð 20 ára seinasta laugardag...Víjj til hammó sæti
kæró
Minni á nýju
myndirnar -> Myndir 5 *NÝTT*
-Áslaug
»
19.02.2007 15:57:38 / Áslaug
Myndir frá laugardagskvöldinu komnar inn...
http://barnaland.is/barn/55654/album/463509/img/20070219143902_0.jpg
eða bara Myndir 5 *NÝTT*
Jájá ágætt djamm
En já ég er frekar busy að vera veik heima í
augnablikinu svo að ég blogga seinna!
»
16.02.2007 10:01:06 / Áslaug
Þetta
stefnir ekki beint í góðann dag!
Ég er
99% viss um að ég sé orðin veik
Þvílíkur hausverkur, illt í hálsinum og mér var illt í eyranu í
gær!! En ég drullaði mér loksins (of seint) á fætur og dreif mig í
vinnuna...Líður eiginlega ekkert vel að stara á þennan tölvuskjá í
augnablikinu! En hvað um það...
Ég hef
eiginlega engin plön fyrir helgina, fyrir utan að
Haukur verður 20 ára á morgun Ekkert plan
í kvöld, svo að þið megið endilega leika við mig...Ekki nema að ég
verði bara orðin rúmliggjandi!
*Mig
langar líka rosa í bland í poka*
Jæja ég
ætla að segja ykkur frá því að ég fór á Alpha dog
í vikunni, nokkuð góð mynd bara...Situr svona soldið í manni enda
sannsöguleg! Ótrúlegt hvað líf fólk getur breyst á nokkrum mínútum!
En ég verð nú að minnast á hann JT minn,
kallinn var þvílíkt að standa sig, langflottastur


*Voff voff*
Já ég fæ víst ekki nóg af því að hugsa um
fallega menn!
En þarf maður ekki aðeins að minnast á Önnu Nicole, guð
blessi hana! En hvurslags vitleysa er í gangi eiginlega 3 menn
þykjast vera faðir litlu Dannielynn...Ég var að horfa á The Insider
um daginn og grey Howard Stern!! Niðurbrotinn í flugvél að fara að
ná í litlu stelpuna sína, og vá brotist inní húsið þeirra og ég
veit ekki hvað og hvað!! Fólk er nú ekki alveg í
lagi

Jááá svona er nú lífið stundum...
-Áslaug
»
13.02.2007 10:32:52 / Áslaug
Ég hef sorgarfréttir að færa ykkur...
...ég er á LJÓTUNNI!!!
Já ég komst að því seinniparts sunnudags að nú væri illt
í efni...Ég fann það hreinlega á mér...
Ekki nóg með það að húðin á mér virðist vera að endurnýja
sig þessa dagana, og er ég því einn stór þurkablettur En þetta er
samt alveg að lagast, en NEI, ég er með 1 stóra bólu, og 1
litla...Ég get svosum lifað með því en hinsvegar get ég ekki lifað
með þessum frunsuvírus mínum...Hafði ekki fengið þetta helvíti
lengi vel, en núna í þessu veðrabreytingum blossar þetta upp einsog
ég veit ekki hvað, og ég er alveg snarbrjáluð
En yfir í allt aðra hluti...
Helgin var fín, á föstudeginum fórum við
skötuhjú útað borða á Hereford og vá hvað ég mæli með þessum
stað, jiminn hvað þetta var svakalega gott!!
Á laugardeginum var 30 ára afmæli hjá Helgu, þvílíkar
kræsingar og læti! Bollan var líka alveg að gera sig! Erna vill
meina að ég hafi verið einsog 5 ára barn með ís Svo
skelltum við okkur í bæinn, en við Erna gáfumst fljótt upp,
röltuðum, tókum kreisí myndir og enduðum á Kebab-staðnum! Þar var
nú meira fjörið, og já kannski að minnast á það að kebabið var afar
gott, er að fýla kebab núna, ég vil meira ég vil meira!!
Jæja ný vinnuvika hafin, en þetta er góður mánuður,
stuttur og fínn! Og svo vill svo skemmtilega til að ég fæ kaupaauka
frá Landsbankanum þennan mánuð, það er fínt! Kaupa dollara eða
einhvað
En hey, það eru ekki allir á LJÓTUNNI, neibb ég held nú
ekki...

Svaka skvísur í Grammy's partýi!!
Pælið samt í því ef ég væri fræg og væri að
fara á Grammy verðlaunin, ég meina ég myndi bara ekki geta
komist á hátíðina! Ég myndi þurfa að grenja heima vegna þess
að ég væri á ljótunni, með frunsu og einhvað fáránlegt Ég
man samt vel eftir því að hafa séð Katie Holmes með huges
stóra frunsu einusinni...Jább veistu mér líður aðeins betur
núna!
-Áslaug Ljóta
»
Síður: 1 2 3 ... 21
|
|